Rangfærslur haha my ass.

Her­dís sagði al­menna reglu þá að þeir fjár­mun­ir sem bundn­ir eru í hluta­fé­lög­um og nýt­ast ekki í rekstri þeirra séu greidd­ir til hlut­hafa.

Hún sagði að þegar nú­ver­andi stjórn tók við í nóv­em­ber síðastliðnum lá fyr­ir mark­mið um áhættu­vilja fé­lags­ins. „Sú stefna trygg­ir sterka stöðu fé­lags­ins til að mæta vá­trygg­ing­ar­skuld sinni og hag­kvæmni í rekstri. Miðað við þessa stefnu sem eng­in at­huga­semd hafði verið gerð við var arðgreiðslu­geta fé­lags­ins tölu­verð. Stjórn ákvað þó að ganga skem­ur en rúmaðist inn­an stefn­unn­ar og leggja til við aðal­fund arðgreiðslu upp á fimm millj­arða.Hvar er raunveruleikinn fyrir þessu fólki?

Þegar iðgjöldin eru hreinlega að sliga almenning, þá þarf ekkert að vera tala svona. 

Þegar nú verandi stjórn tók við, lá fyrir markmið um áhættuvilja félagsins til að mæta vátryggingaskuld sinni og hagkvæmni í rekstri. Þetta þýðir bara á mínu málið; látið helvítin borga sem mest, og reynum eins og hægt er að komast undan að borga tjón sem fólk verður fyrir, þið vitið smáa letrið.  

Og þegar þið þurfið að fara að TAKA LÁN til að greiða sjálfum ykkur og öðrum út arð, þá er eitthvað mikið að. 

Það er nefnilega komin tími til að almenningur láti ekki endalaust tala kring um hlutina með fagurgala. 

Ég ætla mér því að skoða stöðu mína í þessu tryggingarfélagi, og er alveg til í að segja upp samningum mínum við vís um leið og ég finn tryggingafélag sem hugsar um viðskiptiavini sína fyrst og fremst, en ekki gróða hluthafa og eigin háu laun.  

Þetta er einfaldlega bara komið nóg af svindli og svínaríi á öllum sviðum frá sjálftökuliðum á  landinu.  

Svo þurfið þið ekkert að velta fyrir ykkur orðspori félagsins, það er farið ofan í sorptunnuna og á ekki afturkvæmt þaðan.  


mbl.is „Rangfærslur stýrðu umræðunni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sammála þér, þegar tryggingafélag þarf að taka lán til þess að greiða arðinn, þá er ljóst að tryggingatakar framtíðarinnar þurfa að standa undir lántökunni því varla er ætlast til þess að hluthafar geri það.  Eða hvað?

Kolbrún Hilmars, 17.3.2016 kl. 12:40

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Einmitt Kolbrún það er nú einu sinni málið, kúnninn borgar.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.3.2016 kl. 12:56

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þegar arðgreiðslurnar eru  MEIRI en hagnaðurinn þá er bara verið að ganga á eigið fé fyrirtækisins.  Í mínum huga er það ekki arðgreiðsla.

Jóhann Elíasson, 17.3.2016 kl. 17:49

4 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Að vísu er eigið fé ekkert annað en uppsafnaður hagnaður, jafnvel til margra ára.  En þetta eigið fé er ýmist bundið í fasteignum og lausafjármunum.  Mig minnir að heimilt sé að greiða arð (hverju sinni) um 90% af eigin fé, en ef lausafé er ekki til þá þarf annað hvort að selja eignir eða taka lán. Í þessu tilviki þarf að taka lán, um það snýst gagnrýnin.

Kolbrún Hilmars, 17.3.2016 kl. 18:29

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þó svo að eigið fé sé uppsafnaður hagnaður fyrri ára, þá getu útborgun á honum ekki gefið rétta mynd af ávöxtun þess fjár sem þú hefur lagt í fyrirtækið þetta árið.  Segjum að þú kaupir í fyrirtæki í fyrra, stjórnin ákveður að borga eigi út arð sem er meiri en sem nemur hagnaði þessa árs.  Þá eru þeir sem eru þeir sem voru eigendur fyrirtækisins áður en þú gerðist eigandi að greiða hluta af þínum arði.

Jóhann Elíasson, 19.3.2016 kl. 14:42

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það þarf að setja bæði þak og takmörk á þessar arðgreiðslur.  Áttu sennilega að vera hvatning til að gera betur, en er nú mestmegnis orðið til að láta almenning borga meira fyrir þjónustuna til græða meira.  Þannig er tilgangurinn brostinn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.3.2016 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband