Smá gönguferð í gær.

Í dag er skýjað og spáð rigningu, við fórum á markaðin í morgun og keyptum okkur fimmlítra rauðvínskút fyrir 7 evrur.  Fengum okkur svo rif og fórum með heim og átum.  

 

IMG_2392

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Elli á Lamarínabar. Þar hittast íslendingar oft á sunnudögum, Helena veitingakonan er íslensk.  Þarna hittist fólk gjarnan í hádegismat á sunnudögum.  Síðast voru að vísu bara við Elli og Aðunn Karlsson og Fríður. 

IMG_2393

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég er að spá í hvaða tré þetta er likist helst furur, er samt ekki viss.

IMG_2395

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér erum við svo komin á "heimilisbarinn.  En þangað fórum við oft með Kristínu og Sturla síðast.

IMG_2396

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Umhverfið hér er svolítið upp og niður alveg frá mjög fallegu og vil hirtu og niður í algjört drasl.  En þeir hlaða allstaðar svona gróti kring um plöntur.  

IMG_2397

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér býr örugglega mikil blómakona.  smile

 

IMG_2398

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Mikið um allskonar þykkblöðunga og kaktusa.

IMG_2399

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stofublómin okkar bara svona úti á götu.

IMG_2400

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ekki amalegt að hafa svona flott sítrónutré við höndina, þegar þarf að blanda út í drykkina. 

IMG_2402

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Greinilegt að enginn hefur komið hér í nokkur ár þar sem gróðurinn er búin að yfirtaka innganginn.

Hvert hús hefur tvö númer, hátt og lágt.  Hér er til dæmis 1064 og 126.  Annað númerið tilheyrir sveitarfélaginu en hitt er húsnúmerið, veit ekki af hverju þetta er svona.

IMG_2404

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér sést betur hvernig gróðurinn hefur alveg yfirtekið þetta hús.

IMG_2406

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Flott götutré.

 

IMG_2408

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Byrjað að rökkva og sólin að lækka. 

IMG_2410

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Búin með nokkrar svona ástarþvælur, en það er nóg til af þeim, verst að þær eru allar næstum eins, svo þegar búið er að lesa eina er maður búin með þær allar.  En ég er enn birg af krossgátum.

IMG_2413

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er frekar mikið mistur á morgnana, mengun held ég, mér er sagt aðbændurnir séu að brenna akrana sína.

IMG_2415

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En þeir eru nú ekkert sérstaklega penir,

IMG_2417

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi mynd var tekin um hádegið í gær, og þar sést að hitinn var nú ekki meiri en 11°

IMG_2419

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fórum inn á kaffihús og fengum okkur hádegismat. Það sést ekki á myndinni en þarna fyrir ofan vínflöskurnar er  auglýsing fyrir Valentínusardaginn, og þar stendur öðru megin "fyrir hann" og svo hinu megin, þar sem var svona léttara vín "fyrir hana"   Mér datt svona í hug orðið feministi kiss

 

IMG_2420

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Minn bæði saddur og sæll.  

IMG_2422

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er leikvöllur og skrúðgarður, en hér vex ekki gras, sem er eðlilegt þar sem sjaldan rignir.

IMG_2424

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér sést vel hvernig þeir raða steinum í kringum beðin og trén.

IMG_2427

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta var í gær, í dag iðaði þetta svæði af allskonar vörum og þjónustu, hér er markaður á fimmtudögum og sunnudögum.  

IMG_2428

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er aftur þessi "fura"

IMG_2430

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Úbbs! ég sagði ykkur að hér væri mismundandi hreint.  wink

IMG_2431

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér eru svo íbúðir fyrir aldraða og elliheimili, allt tilbúið með lóð og öllu, en svo ekki söguna meir, það er nefnilega minnsta málið að byggja svo þarf að reka heimilin ekki satt?

IMG_2433

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lirfur í sjálfsmorðshugleiðingum, þetta var svona 3ja metra löng strolla allar á leið frá gróðrinum út á götu.  Þetta er víst frekar leiðinlegt kvikindi, brennir bæði menn og dýr ef þau komast í kast við slíka.

IMG_2435

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við Elli í sólbaði hehehe..

IMG_2436

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér eru flest götutrén appelsínutré.

IMG_2439

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og líkt og í Mexico er þríburablómið aðal skrautið, enda afskaplega falleg og blómsæl jurt. Bounginvillea.

IMG_2440

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi eru falleg líka.

IMG_2441

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér hefur einhver plantað niður kryddplöntum.  

IMG_2444

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Appelsínurnar beinlínis flæða niður í garðinn.  

IMG_2446

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Komum svo við hjá Fríði og fengum góðgerðir hjá henni. 

IMG_2447

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo var bara ósköp notalegt að koma heim eftir langan göngutúr. 

IMG_2449

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ljósið í myrkrinu.  Eigið góðan dag elskurnar, það má svo sem orna sér við þessar myndir í vetrarhörkunum heima.  cool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

Frábærlega skemmtilegar og fróðlegar myndir og texti.  Bestu þakkir.  

Jens Guð, 4.2.2016 kl. 13:38

2 identicon

Flottar myndir.  Gaman að heyra frá ykkur. Engin smá öfundsýki í gangi hér.  Annars er að hlýna og er orðið ansi rigningarlegt hérna.  Bið að heilsa Ella.  ta ibþ

Inga Bara Thordardottir (IP-tala skráð) 4.2.2016 kl. 14:35

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mín er ánægjan Jens minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2016 kl. 15:03

4 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þessi ábatasama ferð á markaðinn sýnir eflaust að þú sért fylgjandi frumvarpi Vilhjálms Árnasonar um að frelsa áfengissölu úr klóm ríkisins.

Ragnhildur Kolka, 4.2.2016 kl. 16:30

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei ég er það reyndar ekki Ragnhildur mín.  Ég bý nefnilega á Ísafirði og ég er ósköp hrædd um að vöruúrvalið verði ekki gott á smærri stöðum úti á landi þar sem lítil samkeppni er.  Það verður bara bjórinn sem flestir drekka og vínið sem er vinsælast.  Ég vil geta valið hvað ég drekk. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2016 kl. 19:20

6 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það vantar eitthvað upp á samkvæmni ná hjá þér Ásthildur mín, því fólk sem kaupir 5 lítra rauðvínskúta er ekki beinlínis að Hafa áhyggjur af því að vanda valið.

Ragnhildur Kolka, 4.2.2016 kl. 19:58

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ragnhildur mín, það er smökkun í gangi, þarna eru nokkrar tegundir og maður fær að smakka áður en kaupin eru gerð.  Og svo má segja að það er nú aðeins hægt að slaka á kröfunum þegar keypt er á útsölu.  En málið er að það sem ég valdi er bara alveg ágætt kiss

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2016 kl. 22:32

8 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Elsku litla sys, skal skila kveðjunni, vonandi fer þessi lægð yfir sem fyrst.  En þetta er bara ágætis líf laughing

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.2.2016 kl. 22:33

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Flottar myndir að vanda og gaman að fá að vera með kveðjur til ykkar Ella <3

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.2.2016 kl. 19:48

10 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Knús á móti Milla mín. smile

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.2.2016 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband