Mikið var þetta falleg stund.

Engin getur sett sig í annara spor nema hafa upplifað svipað.  Þetta var falleg stund í kvöld á Grímunni og þessi kjarkmikla konar geislaði af fjöri og kátínu meðan sonur hennar las upp bréfið.  

Svo sannarlega hefur Edda Heiðrún Backmann gefið okkur bæði gleði og sorg gegnum leiklist sína, en ekki síður gegnum lífsferli sitt.  Æðruleysi og þrautsegja koma upp í hugann.  Hún átti allt sem hægt var að eiga, glæsileika, fegurð, leikni, upphefð og hvað sem nöfnum tjáir að nefna.  Og svo allt í einu þarf hún að takast á við sjúkdóm sem er versti óvinur allra, erfiðasti og ósanngjarnasti óvinur sem læðist að manni eins og þjófur að nóttu.  En hún gefst ekki upp, hún finnur sé stað til að takast á við það sem að höndum ber.  

Hún er svo sannarlega okkur öllum gott fordæmi um hvernig við getum brugðist við því sem við þurfum að upplifa.  Kennir okkur að taka einfaldleikann kjarkinn og andlegan styrk á málið.  Hún Edda er leiðarljós ein af mörgum sem varðar okkar veg og við þurfum að meta og elska og taka mark á.  Því þessar hetjur sýna okkur svo sannarlega að lífið er ekki búið þó okkur finnist svo.  Við þurfum bara annað sjónaarmið og önnur viðmið til að mæta hamingjunni.

Innilega til hamingju með þessi verðlaun Edda mín og takk fyrir að vera til. 

Edda Heiðrún Backman


mbl.is Lítur á sjúkdóminn sem hlutverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Er verið að óska eftir lausnum?

Jón Þórhallsson, 17.6.2015 kl. 08:50

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Skil ekki þessa athugasemd þína Jón minn.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.6.2015 kl. 09:17

3 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Sannkölluð hetja og góð fyrirmynd. Kennir manni að maður á ekki að vera alltaf með helvítis væl yfir öllu því lítilræði sem gengur að manni. Lífið finnur sér alltaf farveg.

Jósef Smári Ásmundsson, 17.6.2015 kl. 12:07

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já einmitt. smile

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.6.2015 kl. 13:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2020775

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband