Daglegt brauð.

Veðrið hér er dásamlega gott, það er hálfsól og hlýtt, í gær var hitinn mældur 20° án sólar,  Þó ekki væri þess getið sérstaklega í útvarpi allra landamanna, því eins og allir vita "eiga" austfirðingar og norðlendingar góða veðrið.  Það væri annars gaman að vita hvert hitastigið yrði á Akureyri ef hann væri mældur á útskaga beint á móti norðri?  Það er nefnilega ekki sama hvar hitinn er mældur, hér í nokkur ár var hitinn líka mældur á Ísafirði og var þá hitastigið oft hærra en á Akureyri.  Því miður var það aflagt.  En nóg um það.

Hér eru nokkrar myndir úr garðinum mínum.

1-IMG_6597

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lóðin mín er að verða einn frumskógur,sem gefur mikið skjól.

 

2-IMG_6599

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þá getur verið notalegt að færa stólana bara bak við hús og njóta sólarinnar þar, þessi mynd er tekin í fyrradag.

 

9-IMG_6610

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Ég er nýbúin að taka þetta beð í gegn og gróðursetja.  Er svona að mynda mig við að skreyta garðinn minn. Smile

 

10-IMG_6612

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já hér kennir ýmissa grasa skal ég segja ykkur.  

 

3-IMG_6601

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það sama má segja um mannfólkið, hingað koma oft skemmtilegir gestir, þetta par var að koma frá Hellissandi, hitti þar konu, og þar sem hann er áhugamaður um kúluhús, og er að hanna slík, reyndar bara gróðurhús, sagði hún honum frá mér, svo þau komu og kíktu við.

 

4-IMG_6604

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Virkilega gaman að spjalla, hann er frá BNA en hún frá Ástralíu.  Og eru á puttaferðalagi um Ísland, umhverfisvæn og dugleg.  Ég fæ aðeins meiri trú á bandaríkjamönnum þegar ég hitti fólk eins og hann. 

 

8-IMG_6609

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þau gáfu sér góðan tíma til að sitja og spjalla, hann sagðist örugglega ætla að byggja kúluhús, og við bundumst fastmælum um að hann myndi hafa samband þegar hann byrjaði á því verkefni.

7-IMG_6608

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo var bara eftir að kveðja, þau voru að leggja af stað til Hólmavíkur.

 

11-IMG_6613

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hvað ungur nemur gamall temur, Sigurjón að ræða við afa, hann og mamma hans kíktu við líka.

 

12-IMG_6617

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já það þarf að ræða málin stundum. Heart

 

16-IMG_6626

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og jafnvel æfa sig smá.  

 

17-IMG_6627

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi stöng var sett upp á sínum tíma fyrir Úlfin til að hanga, og strákarnir nota sér það litlu frændurnir.  En aldrei stelpur skrýtið?

 

13-IMG_6621

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En Lotta er afar gestrisin og lætur sér þykja vænt um gesti og gangandi, nú er hún að þvo sér.

 

14-IMG_6622

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vandlega það er meira en að segja það, svo loðin sem hún er þessi elska.

 

15-IMG_6624

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já og svo þarf að slaka á eftir erfiðið.

En ég er á leiðinni út í góða veðrið á Ísafirði.  Eigið góðan dag elskurnar Heart 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nokkuð hefur borið á að hingað komi ferðamenn frá Berlín. Í gær komu fyrst þrír gestir og tilkynntu að þau væru frá Berlín og spurðu hvort þau mættu skoða og taka myndir, það er auðvitað ekkert nýtt, en góðfúslega leyft, seinna um daginn komu svo fleiri, kona sem reyndar býr hér hálft árið með vini sínum gestkomandi, hún sagðist hafa lesið greinina um kúlun og miss Áru í ferðaritinu Geo.

´

Í morgun komu svo mæðgin, þegar þau gengu upp heimreiðina, kallaði konan, er þetta miss Ára? Hún var með blaðið í hendinni og greinina góðu. Þau voru afskaplega ánægð og voru líka ... frá Berlín.

Svo líkast til er ég að draga hingað erlenda gesti á eigin spýtur :)

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.7.2014 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 2020559

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband