Aldrei fór ég suður.

Jamm hér sit ég og horfi á beina útsendingu á Aldrei fór ég suður, Páll Óskar er að trylla lýðin hér í næsta húsi.  Ég get farið úr fyrir dyrnar og hlustað á múskik og fagnaðarlæti.  En það er miklu notalegra að vera heima og horfa á í tölvunni. 

IMG_4764

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 En það er sumt sem við erum aldrei reiðubúin til að upplifa og það er þegar ungarnir okkar fá bílpróf.  Að vísu er ár í leiðbeiningarakstur, þar sem þau aka undir okkar stjórn til að verða reiðubúin til að takast á við ökumennsku.  En svo gerist það óhjákvæmilega að þau fá bílpróf, og þá hefst nú svona sjokkerandi tímabil.  En þessar elskur þurfa að fá að fljúga ekki satt?

IMG_4765

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég segi nú bara fyrir mig, ég held að bæði pabbi hans og mamma hafi vakað yfir drengnum sínum þetta kvöldið, það mátti ekki miklu muna.

IMG_4767

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og þá kemur að því að það er sennilegra ódýrara að kaupa bíl fyrir afkvæmið, en að resikera einkabílnum Smile

En þá er það auðvitað þannig að maður kaupir ódýran bíl, sem þá þarf að gera við.

IMG_4766

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þá er eins gott að ungarnir fái sjálfir að ráða fram úr vandanum, þeim er engin greiður gerður með að púkka endalaust upp á þá, því lífið must go on, og þau þurfa að vera eins sjálfbjarga og hægt er.   þurfa að læra að bjarga sér.

IMG_4770

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Ef við viljum ungunum okkar vel, þá þarf að sleppa takinu og láta þá sjálfa standa fyrir sínu ekki satt?

IMG_4768

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er allavega það sem ég var alin upp með, faðír minn þekkti vel hve mikilvægt var að fólk þurfti að bjarga sér sjálft, og hann svo sannarlega kom því til skila við okkur börnin sín, og fyrir það getum við þakkað honum að við erum öll dugleg og vellátin í vinnu.

IMG_4772

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Hér er svo unginn minn að elda mat fyrir okkur, hér með fylltri papriku sem var æðislega góð, hann kann svo sannarlega að elda, eins og reyndar allir drengirnir okkar Ella, eru listakokkar, og hafa gaman af að elda gurmemat.

IMG_4782

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Veðrið var misjafnd í dag, en að mestu leyti gott og sólríkt, þó endalaust væri klifað á viðvörun um storm og ólæti, þá fór það algjörlega fram hjá eins og oft áður.

IMG_4781

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessar myndir voru teknar um fjögur í dag.

IMG_4774

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En í heimsókn eru barnabörn og sonur, svo gott að hafa þá hér.  Hvað er drengurinnn með?

IMG_4775

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jú Davíð Elías fann mús.

IMG_4776

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og hér er Arnar Milos.

IMG_4785

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og hér er verið að undirbúa að fara á Aldrei fór ég suður, það var frekar hráslagalegt og ungur maður frá El Salvador er ekki vanur slíku, svo það var um að gera að klæða hann vel.

IMG_4786

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Já hér þarf að huga að öllu, áður en lagt er í hann, þó það séu bara nokkrir metrar.

IMG_4788

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og namminamm snjórinn smakkast vel, beint ofan af himninum.

IMG_4790

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Maður þarf svo sem að fara og sækja hann.

IMG_4789

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og nú er afi komin í gírinn líka.

IMG_4791

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Úlfur nýkomin og rétt farin aftur.

IMG_4795

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og afi, við eru reyndar öll fjölskyldan í kúlunni búin að spila á Aldrei, ég Úlfur og Elli, gaman að segja frá því, og á morgun mun Elli spila undir með Helga Björns í stórsveitinni.  Helgi er okkar maður eins og svo margir aðrir tónlistarmenn.

IMG_4797

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já og þá er bara að labba af stað og njóta alls þess sem boðið er upp á.

IMG_4798

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er hægt að hlusta á þetta allt beint á aldreifór ég suður.

Hér: http://aldrei.is/

Eigið góða páska elskurnar. Heart 


mbl.is Aldrei fór ég suður formlega opnuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já eigið þið gleðilegt páska í kúlu og rokkhát!

Kv. Erla

Erla (IP-tala skráð) 19.4.2014 kl. 11:34

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk mín kæra, já ekki gátum við ímyndað okkur í þá daga að svona mikil hátíð yrði nánast í garðhorninu hjá okkur <3

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.4.2014 kl. 12:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 2020779

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband