Ég vil leggja mitt af mörkum.

Já ég vil leggja mitt af mörkum til að vekja athygli á núverandi ástandi hér á landi, þegar æðstu yfirmenn reyna að telja okkur og útlendingum trú um að allt sé hér á besta veg og þau hafi gert allt sem í þeirra valdi stendur til að vinna að hagsmunum þjóðarinnar.

 

Annað hefur nú komið í ljós eins og ég bendi á í síðustu færslu minni hér: http://asthildurcesil.blog.is/blog/asthildurcesil/entry/1200140/

Það var því auðsótt mál hjá mér að vera með hópi valinkunnra manna og kvenna í að skrifa bréf sem senda á nokkrum einstaklingum sem verða hér á ráðstefnu í Hörpunni þann 27. október n.k.

Fólki sem hefur unnið mikið verk til að vekja þjóðina til umhugsunar, með mótmælum, tunnuslögum, borgarafundum og mótmælastöðum.  Grasrótinn sem er hinn venjulegi íslendingur sem vill leiðrétta kúrsinn og takast á við ranglætið með sannleikann að vopin.

Á þessari ráðstefnu  munu íslensk stjórnvöld ætla að matreiða fyrir erlenda sérfræðinga hin góðu störf sín í þágu þjóðarinnar.  Um hve árangursríkt samstarf stjórnvalda hafi verið við Alþjóða Gjaldeyrissjóðinn. 

Þeir sem hér munu mæta og hlýða á boðskapinn, sem hlýtur að verða í anda ræðu forsætisráðherrans á landsfundinum eru sem hér segir:

Joseph Stiglitz, prófessor í hagfræði (ávarpar ráðstefnuna af bandi)
Julie Kozack, aðstoðardeildarstjóri aðgerðaráætluninnar IMF á Íslandi
Martin Wolf, fjármálasérfræðingur frá Financial Times (stýrir pallborðsumræðum)
Nemat Shafik, aðstoðarframkvæmdarstjóri IMF
Paul Krugman, prófessor hagfræðingur
Poul Thomsen, aðstoðarframkvæmdarstjóri evrópudeildar IMF
Simon Johnson, prófessor alþjóðaviðskiptum (fyrrum starfsmaður IMF)
Willem Buiter, prófessor í hagfræði

Og bréfið hljóðar svo:

 

Reykjavík 23. október 2011

Kæri herra/frú

Tilefni þessara skrifa er það að þú ert meðal þeirra sem munu taka til máls á ráðstefnunni Iceland´s Recovery—Lessons and Challenges, sem haldin verður í Reykjavík 27. október næst komandi. Við undirrituð höfum áhyggjur af því að þú hafir aðeins fengið valdar upplýsingar um efnahagsástandið á Íslandi frá hérlendum stjórnvöldum. Við viljum því benda þér á mikilvægar viðbótarupplýsingar varðandi fjármál ríkis og sveitarfélaga, fjármálakerfið og stöðu almennings í landinu.

Almennt

Ljóst er að staðan í íslensku efnahagslífi er nokkuð önnur í dag en upphaflegar áætlanir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) gerðu ráð fyrir þegar þeir komu hér að málum í lok árs 2008. Þannig voru erlendar skuldir þjóðarbúsins nærri tvöfalt meiri í árslok 2010 en upphaflega var áætlað; skuldir hins opinbera eru meiri, atvinnuleysi er meira, verðbólga á árinu 2010 var meiri og svo virðist sem samdrátturinn í efnahagslífinu ætli að verða dýpri og vara lengur.

Ríkisfjármálin

Fyrir hrun skuldaði ríkissjóður 26% af VLF. Opinberar tölur yfir skuldir ríkisins eru 111% af VLF en heildarskuldir þjóðarbúsins eru hins vegar 280% af VLF. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs versnaði um 140 milljarða króna milli annars ársfjórðungs 2010 og 2011. Ef marka má þessar tölur þá er hægt að leiða að því líkum að íslenska ríkið hafi frá hruni tekið að láni fjárhæð sem nemur jafnvirði landsframleiðslu í eitt ár og þá eru lánin frá AGS ekki einu sinni talin með. Vaxtakostnaður ríkissjóðs af núverandi skuldabyrði er hátt í 20% af tekjum.

Sveitarfélög

Skuldir sveitarfélaganna og skuldbindingar voru 586 milljarðar um seinustu áramót. Ef skuldir Orkuveitu Reykjavíkur, sem eru vel á 300 milljarða, og 47 milljarða lífeyrisskuldbindingar sveitarfélaganna eru frátaldar standa samanlagðar skuldir sveitarfélaganna í 310 milljörðum kr. sem er 20% af VLF og 154% af tekjum þeirra.

Fjármálakerfið

Kostnaður íslenska ríkisins við endurreisn bankakerfisins í kjölfar hrunsins haustið 2008 var 64% af VLF sem er heimsmet. Nýju bankarnir fengu lánasöfn gömlu bankanna á 45-65% af raunvirði þeirra. Þessi niðurfelling á milli gömlu og nýju bankanna hefur þó ekki skilað sér til almennings þar sem lánin eru rukkuð inn á nafnvirði þeirra. Afleiðingarnar eru mikill hagnaður bankanna sem byggir á því að þeir eru að eignast stóran hluta af öllum eignum íslenskra fyrirtækja og heimila.

Almenningur

Nú er svo komið að 20% heimila í landinu geta ekki borgað af lánum sínum og 40% eru í miklum erfiðleikum. Í raun eru það bara 10% sem geta greitt af húsnæðislánum með eðlilegum hætti.

Ráðstöfunartekjur heimilanna hafa lækkað um 27,4% síðastliðin þrjú ár á meðan verðlag hefur hækkað um 40%. Af þessum ástæðum hefur neysla þjóðarinnar dregist saman. Á sama tíma hefur þörfin fyrir mataraðstoð margfaldast en engar opinberar tölur eru til yfir fjöldann. Það eru þó staðreyndir að biðraðirnar við hjálparstofnanir hafa lengst og fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna hefur aukist um 62% frá hruni.

Fram hefur komið í tölum ríkisskattstjóra að skuldir íslenskra fjölskyldna hafi vaxið meira en eignir en á síðasta ári rýrnuðu eignir í fyrsta skipti meira en skuldir. Fjölskyldum sem eiga meira en þær skulda hefur fækkað um 8,1% milli ára. Þeim sem voru með neikvæðan eignaskattstofn fjölgaði hins vegar um 12,1%.

Samkvæmt síðustu tölum Vinnumálastofnunar er atvinnuleysið 6,7%. Sú tala er hins vegar umtalsvert hærri þar sem markvisst er unnið að því að koma atvinnulausum í nám og margir hafa yfirgefið landið í leit að atvinnu og betri lífskjörum. Í þessu sambandi skiptir líka máli að hópur fólks sem er atvinnulaus en á ekki rétt á atvinnuleysisbótum skráir sig ekki atvinnulausa. Hvatinn til að skrá sig er ekki til staðar þar sem fólk fær engar bætur hvort eð er. Að lokum er rétt að benda á að samkvæmt tölum sem hafa verið í opinberri umræðu má ráða að störfum á Íslandi hafi fækkað um 22.500 sem er u.þ.b. 8,2% af skráðu vinnuafli árið 2010.

Niðurstaðan

Meginástæða hrunsins var ofvaxið bankakerfi. Það orkar því mjög undarlega á almenning að horfa upp á þá ofuráherslu sem stjórnvöld leggja á endurreisn þessa sama kerfis í stað þess að byggja upp raunhagvöxt samfélagsins. Byrðum fjármálakreppunnar hefur fyrst og fremst verið dreift á skuldsett heimili. Ríkisstjórnin hefur markvisst unnið gegn almennri leiðréttingu lána og innleitt sértæk skuldaúrræði sem gefa bönkunum sjálfdæmi varðandi það hverjir fá leiðréttingu og hversu mikla. Flest ef ekki öll úrræði við skuldavanda heimila og smærri fyrirtækja hafa miðast við að viðhalda greiðsluvilja.

Þessi afstaða ríkisstjórnarinnar og vinnubrögð bankanna hafa skapað aukna misskiptingu. Landsmenn horfa upp á að það er verið að afskrifa skuldir þeirra sem ullu hruninu. Þessir halda líka fyrirtækjum sínum og arði af ólöglegum fjármálagjörningum á sama tíma og almenningur er látinn sitja uppi með forsendubrestinn. Því er svo komið að óréttlætið ógnar félagslegum stöðugleika í landinu. Kjörnir fulltrúar fara eftir kröfum fjármálaaflanna á kostnað hagsmuna almennings.

Íslenska bankakerfið hefur sett skuldir sínar yfir á almenning eins og gert hefur verið í Grikklandi, Írlandi, Portúgal og víðar. Ísland sker sig því ekkert úr hvað það varðar að lýðræðið hefur orðið fórnarlamb bankaveldisins.

Virðingarfyllst,
Andrea Jóhanna Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna
Ásta Hafberg, nemandi í viðskiptastjórnun

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, fyrrverandi garðyrkjustjóri

Elínborg K. Kristjánsdóttir, fyrrverandi blaðamaður
Elías Pétursson, framkvæmdastjóri/háskólastúdent

Eyjólfur Kolbeinn Eyjólfsson, hugbúnaðarsérfræðingur
Björg Sigurðardóttir, fyrrverandi bankastarfsmaður

Björk Sigurgeirsdóttir, ráðgjafi
Guðbjörn Jónsson, ráðgjafi kominn á eftirlaun

Guðmundur Ásgeirsson, kerfisfræðingur
Guðrún Skúladóttir, sjúkraliði

Gunnar Skúli Ármannsson, læknir
Helga Garðarsdóttir, ferðamálafræðingur

Helga Þórðardóttir, kennari
Indriði Helgason, rafvirki

Jakobína I. Ólafsdóttir, stjórnsýslufræðingur
Rakel Sigurgeirsdóttir, íslenskukennari

Sigurjón Þórðarson, líffræðingur
Sigurlaug Ragnarsdóttir, listfræðingur

Vilhjálmur Bjarnason, ekki fjárfestir
Þórarinn Einarsson, aktívisti

Þórður Á. Magnússon,
framkvæmdarstjóri

Afrit sent á erlenda og innlenda fjölmiðla svo og ráðherrana þrjá sem eru í gestgjafahlutverkinu á ráðstefnunni: Iceland´s Recovery—Lessons and Challenges sem haldinn verður í Hörpunni n.k. fimmtudag eða þ. 27. október

Sjá einnig hér: http://raksig.blog.is/blog/raksig/entry/1200199/

Og hér: http://thjodarsalin.blog.is/blog/thjodarsalin/

Og fleiri stöðum. 

Látum orð okkar berast og sýnum að við erum ekki bara peð á skákborði stjórmálamanna.  Við erum frjáls og óháð þjóð, sem berst núna fyrir frelsi okkar og lýðræðinu, ásamt svo að segja nánst öllum heiminum.  Og allstaðar er það sama, arðrán banka og útrásarvíkinga, undanlátssemi eða meðvirkni ráðamanna, og gróf íhlutun í eignir og líf fjölskyldna.  Við erum ekki ein á báti, um allan heim eru frelsishetjur að berjast fyrir hinu sama, segja peningavaldinu og elítunni að það sé hingað og ekki lengra.  Nú sé komið nóg.  Meiri peningar verða ekki sóttir í sameiginlega sjóði, og eignir alþýðu manna. 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981[1]

Upp með íslands frjálsa brag.  Niður með lygi, óhróður og eignaupptökur alþýðunnar á kostnað hinnar ríku elítu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Karl Ellertsson

Flott framtak hjá ykkur Ásthildur.

Árni Karl Ellertsson, 24.10.2011 kl. 22:33

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir það Árni og takk fyrir innlitið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.10.2011 kl. 22:58

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Var búinn að lýsa velþóknun minni á þessu og kommentera hjá Guðmundi. Gott hjá ykkur að þurrka varalitinn af svíninu jafn óðum og reynt er að klína honum á.

Rakst annars á ÞETTA á youtube. Sé ekki betur en að mín manneskja sé að dansa þarna fyrir framanlandsbankann í den. Sést þarna á bilinu 00:30 til 00:40. Herramanninn kannast ég ekki alveg við.

Jón Steinar Ragnarsson, 25.10.2011 kl. 02:08

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gaman að þessu Jón Steinar, þessi ungi maður var Siglfirðingur eða einhversstaðar þaðan, man eiginlega ekki nafnið hans í augnablikinu, en minnir að hann hafi heitið Thorarensen, hann er löngu dáinn þessi elska.  En hann elskaði mig út af lífinu, að var því miður ekki gagnkvæmt eins og gengur.  En mér þótti samt vænt um hann.  Þarf að ryfja þetta upp.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.10.2011 kl. 02:13

5 Smámynd: Kidda

Gott hjá ykkur.

Kidda, 25.10.2011 kl. 10:09

6 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Frábært hjá ykkur, kv Bláskjár.

Eyjólfur G Svavarsson, 25.10.2011 kl. 11:33

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Kidda mín og Eyjólfur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.10.2011 kl. 12:51

8 Smámynd: Óskar Aðalgeir Óskarsson

Magnað framtak.

Óskar Aðalgeir Óskarsson, 25.10.2011 kl. 13:13

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk Óskar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.10.2011 kl. 13:17

10 identicon

Frábært framtak. Styð þetta heilshugar.

Arnór Valdimarsson (IP-tala skráð) 26.10.2011 kl. 01:43

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk gott að vita Arnór minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.10.2011 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband