Kvöldmatur á Tabasveitingastað.

Hér er notalegt og bjart.  Hitinn er þetta milli 18°til 28°.  Ég fór ekki á ströndina í gær sat bara heima á patíóinu og las, réði krossgátur og var í tölvunni. Reyndar opna ég hana með sorg í hjarta að sjá hvernig komið er fyrir pólitíkinni í landinu okkar.  En öll él birtir upp um síðir, og ég hef þá tilvinningu að þessi ríkisstjórn sitji ekki út kjörtímabilið, til þess ber of mikið í milli, og of mikið hefur verið fullyrt og sagt af ýmsum stjórnmálamönnum til þess að þeir geti yfirleitt horft framan í fólk. 

En hvað með það.  Við ákváðum að fara á tabas bar í gær, þarna var mikið fólk og góður matur.  Þar sem ekki er selt vín á staðnum fórum við með rauðvín og bjór með okkur, það er bara þannig, og allir gera þetta.  Þjónarnir opna flöskurnar fyrir mann og koma með glös.

 

1-IMG_0842

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Heimilisiðnaðurinn á fullu, Kristín er að búa til band til að hengja upp veggvasa.

2-IMG_0844

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og auðvitað tekur eiginmaðurinn þátt í því.  laughing annars bara notaleg kvöldstund fyrir svefninn.

3-IMG_0847

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér eru svo systkinin að hjálpast að með innstungur.  

04-IMG_0849

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En við fórum sem sagt út að borða á tabasveitingastað.

5-IMG_0851

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er verið að panta matinn, þjónustan var góð þetta er fjölskyldusstaður og amma gamla staulaðist milli borða og var að hjálpa til.  En staðurinn var þétt setinn og við fengum síðasta borðið.

6-IMG_0852

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er maturinn yfirleitt sterkur, en ég pantað mér steik og hún var bæði mátulega krydduð og mjúk.  

09-IMG_0854

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er allskonar gúmmelaði.  

Eftir matinn fórum við svo rúnt um borgina, hér búa um 400.000 manns, fleiri en á öllu Íslandi.  Ókum strandgötuna sem var þétt skipuð ungu fólki að skemmta sér.  

Og fórum loks í Dairie Queen og fengum okkur rjómaís með dýfu.  

Frábært alveg. 

Ég á eftir að senda ykkur myndir af leigubílunum hér sem eru ansi skrautlegir margir. 

9-IMG_0862

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er til dæmis einn, svo eru allskyns skemmtilegar útgáfur.  En nú fer að koma morgunmatur og ég er orðin svöng. að er dekrað við okkur Ella minn af mákonu minni Kristínu og svila.  Yndislegt fólk. 

Hér er komið allskonar bæðu after bite og moskítófælur, því Þær láta sig ekki vanta. 

En eigið góðan dag elskurnar. 

 


Bloggfærslur 11. janúar 2017

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 2020785

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband