30.11.2016 | 20:58
Já já brúneggjabændur, þannig er nú það.
Svona ykkur að segja ágætu brúneggjaframleiðendur þá eru til íslensk fyrirtæki sem votta góðan aðbúnað dýra. Það þarf ekki að leita erlendis til þess.
"Kristinn Gylfi sýnir blaðamanni og ljósmyndara fyrst inn í hólf 7 á Teigi, þar sem rúmt virðist vera um hænurnar, gólfin þurr og yfir litlu að kvarta varðandi aðbúnað, þó húsið sé gamalt. Svona eru öll okkar hús, sagði Kristinn Gylfi og bendir ljósmyndara á hænu sem er í rykbaði".
Að sýna Blaðamanni öll ykkar hús núna og meira að segja hænu í rykbaði (vá) hvar ætli hún hafi lært það? gerir ykkur ekki að trúverðugum aðilum svo langt í frá. Þið sáuð algjörlega sjálfir um að eyðileggja orðstýr ykkar gjörsamlega með því sem kom fram bæði hjá Mast og Kastljósi. Og við erum að tala um NÍU ár sjáðu til.
Skoða að fá utanaðkomandi vottun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
30.11.2016 | 10:29
Egg.
Ég er bara að hugsa um hvað verður um þessi egg, sem verið er að taka úr sölu. Mér finnst afar skiljanlegt að fólk bregðist illa við, og getaur eggjabóndinn engum kennt um nema sjálfum sér.
En sem sagt hvað verður um eggin? Ég vil benda á að það eru margir svangir munnar sem myndu gjarnan þiggja nokkur egg, svona fyrir jólin, bæði fátælir og hælisleitendur.
Það væri rosalegt að henda öllum þessum eggjum þegar þarna úti er fólk sem gæti átt betri daga augnablik við að fá þessi egg. Fyrir nú utan að bóndinn gæti svolítið lyft sér upp með því að gera einmitt það, færa mæðrahjálpinni og fleiri slíkum egginn.
Eigið annars góðan dag.
Munu heimsækja Brúnegg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.11.2016 | 15:27
Ferðin okkar Ella til Kanada.
Er ekki tilvalið að leggjast í smá myndasyrpu þegar verðið er svona leiðinlegt.
Já við vorum búin að skoða Niagarafossana, svo leiðin lá aftur til Toronto. Þar sem allar rútuferðirnar voru upppantaðar urðum við að taka lest og skipta um á einum stað. Það tók 4 tíma í stað 2ja. En hvað um það.
Við héldum að við ættum ekki að fara fyrr en á þriðjudegi, en það kom ðí ljós að við áttum flug heim á mánudagskvöldið. Okkur hafði verið boðið í "Thanksgiving" á mánudeginum hjá David syni Sissa, en þar sem svona lá í hlutunum var ákveðið að flýta veislunni fram á sunnudag. En þau áttu flest frí í vinnunni á mánudeginum. En þetta varð úr.
Komin aftur heim til Sissa og Móses, það var notalegt.
Kanadamenn gera meira en að setja aðvörun á sigaraettupakkana, svona lítur það út.
Móses spilaði á gítarinn sinn, hann bæði spilar ágætlega og syngur vel, en hann notar einungis fjóra strengi sennilega af því hann hefur ekki efni á að kaupa sér fleiri :)
En hér erum við aftur komin til Diane og Mark, Mark ætlar að grilla nautasteik.
Notaleg stund að bíða eftir steikinni.
Hér sjáið þið ekta nautasteik eins og nautasteik á að vera, fitusprengd og flott.
Og lungnamjúk eins og hún á að vera.
Ykkar einlæg að bíða með tilhlökkun.
Og þá er að njóta.
Namminamm.
Diane og Mark.
Og svo auðvitað slaka á eftir góða steik. Hvað er notalegra?
Hann semur sín lög sjálfur og textana líka.
Notó.
Móses heitir í raun og veru Cheysy, en hann tók sér nafnið Móses sem gyðingur.
En þá erum við komin í aðra veislu, þakkargjörðardaginn, að vísu var honum flýtt um einn dag okkar vegna.
Sissi með afabarninu sínu honum Eric, eða Eiríki.
Sannarlega girnilegt framreitt af Mutsuke Skaftason.
Öll fjölskyldan samankomin á þessum árlega hátíðisdegi, sem systir mín staðhæfir að hafi verið fundinn upp til að geta selt kalkúna, því þeir eru algjörlega bragðlausir segir hún og bara upp á punt og hefð sem ekki er til. En hvað veit ég
En maturinn hennar Mutsuki var svo sannarlega gómsætur með öllu melæti.
Og hér er þessi yndislega fjölskylda sonur Sissa David, Mitsuki og Eric.
Hér má svo sjá vatnið sem er risastórt og þarna má sjá gömlu Torontoborg.
Hér er svo smáhugmynd að dvergbókasafni.
Hér má svo sjá blokkina sem Sigþór býr í, og allskonar smáverslanir þarna fyrir framan, þ.a.m besti fish and chips matstaður í Canada það segja strákarnir allavega.
En hér endar þessi ferðasaga mín, þetta var afskaplega skemmtileg ferð og yndislegt að hitta ættingjana hans Ella og kynnast þeim betur. Held að þau hugsi sér til að koma hingað næst sumar það verður gaman.
So thanks for us folks, this trip was really something, and we look forward to see you again.
Hér eru fyrri færslur.
Eigið svo góðan dag.
http://asthildurcesil.blog.is/admin/blog/?entry_id=2183984
http://asthildurcesil.blog.is/admin/blog/?entry_id=2182679 http://asthildurcesil.blog.is/admin/blog/?entry_id=2182679
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.11.2016 | 23:04
Já þetta kemur svo í ljós ekki satt?
Allir sem mæta til borðs eru heiðarlegir og það er það sem skiptir máli. Það er rætt um málefni og allt egó dregið til baka því við vitum að þjóðin sem heild þarf sátt.
Það mun svo sannarlega koma í ljós þetta með heiðarleikan.
Ákvað sjálf að taka ekki sæti í vinnuhópnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.11.2016 | 16:17
Niagara.
Við vorum á leiðinni til Niagra þegar síðast var ritað.
Niagrafossarnir er stærsta vatnsfall fyrir utan Virginíufossar í Afríku.
Áin Niagra deilist í tvennt og fellur annar hlutinn Bandaríkjameginn en hinn í Kanada.
Kanadameginn er fossinn kalaður hestskóarfossinn. Um 12 milljón manns koma árlega til að skoða fossana.
Hótel, veitingastaðir og allskonar aflþreying hafa risið í bænum Niagara.
Frá Toronto tekur tvo tíma með rútu til Niagara. Það er líka gaman að ferðast með rútu, því það er margt að sjá á leiðinni.
Borgin er ekki stór, en hingað koma samt um 12 milljón ferðamenn árlega til að skoða fossana. Rútustöðin er svona um hálftíma gang frá borginni, ágæt ganga, en ef menn eru fótafúnir er hægt að taka svokallaða græna rútu sem fer þessa leið á ákveðnum fresti. Við ákváðum að labba.
Þegar við vorum rétt ókomin stoppað glaðlegur leigubílstjóri og bauð okkur far, sagði að hann sæi á mér að ég væri þreytt. Elli var nú ekki alveg á því, en ég sá að þarna væri tækifæri til að fá aðstoð með gistingu. Kostar ekki neitt, sagði hann. Svo við fengum far. Hann ók okkur á mótel, ágætis stað alls ekki dýrt, kostaði 78 canadadollara, kingsise bed eins og á flestum stöðum hér vestra. Ég gaukaði að honum 6 dollusum og hann ók glaður á braut.
Við komum okkur fyrir á mótelinu og fórum svo að skoða okkur um.
Skemmtanabransinn er alveg á fullu hérna, minnti mig á Las Vegas, þó ég hafi ekki komið þangað. En allavega var hér líf og fjör.
Já kingsise það vantaði ekki
Fórum og fengum okkur að borða. Leist best á Fridays, eftir reynslu af matsölustöðum í Toronto, þarna var þó allavega steik en ekki bara eitthvað hamborgarasull, nei segi bara sona
En fossarnir stóðu algjörlega fyrir sínu, þvílík fegurð, og drunurnar voru magnþrungnar.
Þetta er Bandaríkameginn, það færi enginn niður í tunnum þarna meginn svo mikið er víst. Og sem betur fer fyrir Kanadamenn blasir fossinn miklu betur við þeim meginn frá.
Skýt svona að þeim sem hyggjast fara að það er ágætt að vera með eyrnatappa því hávaðinn í tækjum, tólum, horrorhúsum og slíku er ærandi.
Þarna sést í þá kanadisku.
Þarna sigla bátar með ferðamenn að fossunum.
Þetta er bara fegurðin ein.
Bátar sigla með fullfermi af ferðamönnum, mest voru þetta litli gulir kínverjar.
Á bakkanum var allskona skemmtun, hér er par að spila og syngja kúrekalög.
Í skóginum hoppaði fallegur íkorni örugglega að safna vetrarforða, þeir eru margir hér, sumir gráir aðrir brúnir en alltaf fallegir.
Já hér er sko nóg um að vera.
Svona má skoða vel.
Leikjaheimurinn heillaði börnin.
Og að fá sér ís er ekkert slor. Ísinn er samt betri í Hamraborg.
Mikið um að vera og margar fjölskyldur leggja hingað leið sína í frí.
Og hér má sjá ýmsar þjóðþekktar persónur
King Kong í öllu sínu veldi.
Og lífið heldur áfram. Allt í göngufæri.Ekki hafa áhyggjur af bjórnum hann er á leiðinni.
Og ég ákvað allt í einu að við færum í Parísarhjólið.
Veit ekki alveg hvað er að gerast með lofthræðsluna mína, en þetta var dásemdar ferð hátt upp í loftið með allskonar tryllingi til viðbótar.
Öðruvísi sýn á Niagraborg.
Og fossarnir eru upplýstir á kvöldin.
Hér er meira að segja eldfjall, gerfi eins og allt hitt.
Það var svo notalegt að leggjast í stóru rúminn eftir skemmtunina.
Elli fór svo í göngutúr daginn eftir.
Hér sést glöggt hvað þetta er gríðarlega mikið vatnsmagn, sem rennur til sjávar. Þeir eru reyndar með virkjun þarna fyrir ofan, en það virðist ekki hafa áhrif á vatnsmagnið.
Hér sést greinilega hvað kanadamenn leggja mikið upp úr fagurmótuðum arkitektur.
Hér er líka allt snyrtilegt.
Skógarsýn.
Var að hugsa um hvort þetta væri eiginlega ???
Þegar við ætluðum að taka rútuna til baka kom í ljós að allar rútur foru fullar fram að 10 um kvöldið, svo það var ekki um annað að gera en að taka lest til næstu borgar og svo þaðan til Toroto. Það tók 4 tíma, en var vel þess virði. Og allt þetta ferðalag var dásamlegt.
Á svo eftir að tala um thanksgifing og slíkt, en eigið góðan dag elskurnar.
...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.11.2016 | 21:34
Vekanaktívistarar.
Hlustaði á viðtal við unga konu í gær um Antivegan. http://www.dv.is/frettir/2016/11/7/brotnudu-saman-og-gretu-fyrir-utan-ss-thetta-eru-utrymingarbudir-mordingjar/ Þessi hópur hefur verið að mótmæla við sláturhús SS á Selfossi.
Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei á minni löngu ævi heyrt aðra eins vitleysu.
Auðvitað er sárt þegar blessuðum lömbunum er slátrað að hausti. Ég er alinn upp við að slíkt gerðist. Flestir nágrannar mínir áttu kindur, kýr og hænur, þegar ég var að alast upp. Og það kom alltaf að þessum sorglega punkti að það þurfti að slátra. Til þess var leikurinn nefnilega gerður. Bændur slátruðu heima og unnu afurðirnar til vetursins.
Þessi blessuð kona sagði að við værum komin svo langt frá náttúrunni með þessum "verksmiðjubúskap" sem henni var tíðrætt um.
Það ætti ekki að drepa dýr það væri morð. Spyrillinn vildi þá vita hvort þessi dýr myndu þá yfirleitt verða til. Bændur væru ekki að rækta dýrin til skemmtunnar.
Hún spurði þá á móti: Hvað með til dæmis svínin enginn sér þau þau eru höfð í búrum, þar sem enginn sér þau, þess vegna væri fólki sem sem alveg sama um hvort ´þau væru til eða ekki. Lömbin eru náttúrulega algjöðr krútt.
Þessi ágæt kona gat ekki skilið að ef enginn borðaði kjöt, nýtti ekki ull eða klæddi sig í skinn, þá væru enginn húsdýr lengur. Það yrðu heldur engir bændur, sveitirnar myndu leggjast í auðn. Það má ekki einu sinni drekka mjólk, svo kýrnar yrðu slegnar af líka.
Ég veit svo sem ekki hvað við hin erum komin langt frá náttúrunni, eflaust eitthvað áleiðis í ranga átt. En þessi stefna er svo mikill kjánagangur að það hálfa væri nóg.
Kindin hefur lifað með okkur í sátt og samlyndi frá upphafi. Þær hafa fætt okkur og klætt gegnum tíðina. Lömbin fæðast að vori og eiga gott sumar í umsjá mæðra sinna. Þegar haustar þarf að setja á og slátra. Það er lífsins gangur. Ef það væri ekki, þá væru engar rollur til, því það fer ekki nokkur maður að ala upp kindur sem gæludýr, enda væri það í sjálfu sér dýraníð, því þær vilja ganga frjálsar um fjöll og firningi sumarlangt.
Kýrnar hafa líka séð okkur fyrir mjólk, smjöri, skyri,osti og allskonar lostæti, ef ekki má nýta þessar fæðutegundir yrðu engar kýr, það fer enginn að leika sér að því að hafa kýr sem gæludýr.
Það ljótasta við þessa vitleysu er að þetta fólk er að afvegaleiða börnin og ungviðið í þessum asnaskap til að vinna sér inn málstað.
Auðvitað má svo ekki borða fisk, og þar með væru engir sjómenn heldur, engar útgerðir og engin gjaldeyrir af fiskveiðum.
Hvað yrði þá um allt þetta fólk sem lifir af langbúnaði og sjávarútvegi. Og þá kemur spurningin hverjir eru svo komnir langt frá náttúrunni?
Það væri fróðlegt að fá svör frá þessu fólki, hvernig það heldur að við getum dregið fram lífið á því að neyta einungis grænmeti og ávöxtum. Þau hafa sennilega heldur ekki lesið að bæði ávextir og grænmeti eru tilfinningaverur, svo það er morð að éta slík. Þá fer nú hringurinn að þrengjast.
Já það væri gaman að heyra hvernig þau ætla að höndla þessi mál ef þau ná markmiðum sínum.
Því má segja að þetta sér framtíð Vekanaktívista. Verði þeim að góðu, við hin verðum örugglega löngu farin eitthvað annað.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.11.2016 | 15:11
Kosningaúrslit.
Þessar kosningar fóru ekki eins og ég hafði vonað, en hvað um það. Maður þarf að læra að taka tapi eins og sigrum.
Við þá flokka sem eru að tala um sigur eins og Sjálfstæðisflokkinn vil ég segja þetta kjörsókn er með því allra minnsta í sögu kosninga frá upphafi það er því rangt að þið hafið unnið sigur, og ef þessi fáránlegu kosningalög væru ekki, þá hefðu Flokkur fólksins fengi inn jafnvel 2 menn og Dögun einn.
Það segir líka sögu um að fólk er hreinlega búið að gefast upp á íslenskum stjórnmálum.
Það vekur athygli mína hvað Bjarni er æstur í að fá umboðið. Hann óttast sennilega tillögu Katrínar Jakobsdóttur um stjórn frá miðju til vinstri.
Reyndar telur Benedikt sig líka eiga að fá umboðið. Sennilega ákveðin frekja í ættinni.
Ég held nefnilega að almenningur hafi hafnað Sjálfstæðisflokknum, það var frekar óþrifaleg kosningabarátta með að hringja í fólk og hræða það frá því að kjósa til vinstri sem réði úrslitum meðal annars, og sýnir einnig hversvegna sumt fólk sem ekki hafði geð í sér til að kjósa sat heima.
En þetta er nú reyndar vitað og ekkert nýtt.
Annars var kosningabaráttan mest heiðarleg og málefnaleg. Mér hugnast betur úr því sem komið er að forsetinn veiti Katrínu Jakobsdóttur umboðið. (vona samt að Steingrímur hafi vit á að vera áfram í felum) Það verður ríkisstjórn meira í anda þess sem fólk var að biðja um, breytingar og betra siðferði í stjórnmálum.
Mér finnst líka eftirtektarvert að Píratar buðust til að styðja minnihlutastjórn í stað þess að krefjast að fá umboð til stjórnarmyndunar. Mér finnst það vera afskaplega sterk ábending frá þeim um að þau virkilega meini það sem þau eru að segja.
Svona á heildina litið held ég að ríkisstjórn sem nú verður mynduð sitji ekki lengi, fólk er sárrétt, ekki síst eftir nýjasta útspil kjararáðs sem nóta bene er skipa meirihluta Sjálfstæðismanna og Framsóknar. Vonandi hef ég samt rangt fyrir mér, því við þurfum að leiða ýmis mál til lykta sem ekki geta beðið mikið lengur.
Málefn sem ég tel algjörlega forboðið að verði ef Sjálfstæðisflokkurinn verði það í fyrirrúmi, þeir hafa sýnt að þeir hafa engan áhuga á kjörum eldriborgara, öryrkja, heilbrigðismálum, eru auk þess útverðir Kvótagreifanna, eða kjaramálum, nema þeirra eigin. Þessi hækkun sem nú á að koma til, er mörgum sinnum hærri í krónum talið en Bjarani Benediktsson taldi að hægt væri að veita öldruðum og öryrkjum, þá voru ekki til neinir peningar en nú hefur ekki heyrst múkk. Hver er stöðugleikinn nú?
Hvernig sem allt veltur held ég að nú snúist samfélagið á hvolf, púðurtunnan sem stóð full af sviknum loforðum áhugaleysi á þörf almennings, misskipting milli hópa, þeirra sem rétt skrimta og hinna sem geta bara verið áskrifendur að kaupinu sínu, sé um það bil að springa. Og ég held reyndar að hún þurfi að springa, til að breytingar náist fram. Þetta er orðið svo óþolandi að það er hingað og ekki lengra.
Eigið góðan dag elskurnar.
Enginn meirihluti án Sjálfstæðisflokks | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
- prakkarinn
- katrinsnaeholm
- jensgud
- matthildurh
- jenfo
- kiddat
- hronnsig
- katlaa
- katagunn
- kolbrunb
- joiragnars
- birgitta
- holi
- rs1600
- ktomm
- heidathord
- vestfirdir
- steina
- laufeywaage
- maggadora
- lehamzdr
- icekeiko
- isdrottningin
- skaftie
- hneta
- hross
- amman
- johanneliasson
- helgamagg
- zeriaph
- olafia
- jogamagg
- tigercopper
- ellasprella
- zumann
- estro
- sjos
- gmaria
- gudr
- ktedd
- salvor
- bertha
- solisasta
- meistarinn
- baenamaer
- sirrycoach
- annalilja
- komediuleikhusid
- tildators
- hector
- bene
- skelfingmodur
- fifudalur
- xfakureyri
- madddy
- siggith
- antonia
- elina
- rosaadalsteinsdottir
- framtid
- annaragna
- sirri
- thjodarsalin
- bestalitla
- helgatho
- jyderupdrottningin
- hallaj
- ingistef
- gudruntora
- zunzilla
- sisvet
- aevark
- bostoninga
- ace
- drengur
- robbitomm
- faktor
- disag
- ffreykjavik
- ma
- rannveigh
- igg
- robertb
- sgisla
- rafng
- helgi-sigmunds
- lotta
- fullvalda
- heimssyn
- naflaskodun
- johannesthor
- jeg
- huxa
- sigrunzanz
- jodua
- tryggvigunnarhansen
- minos
- saemi7
- blossom
- ansigu
- skagstrendingur
- beggo3
- h2o
- westurfari
- ammadagny
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- esig
- sunna2
- frjalslyndir
- gudlaugbjork
- gp
- hreinn23
- guki
- gustafskulason
- harhar33
- diva73
- huldagar
- kliddi
- axelma
- keli
- bassinn
- jonvalurjensson
- josefsmari
- kuldaboli
- kiddatomm
- ksh
- kristjan9
- mio
- omnivore
- sumri
- samstada-thjodar
- fullveldi
- nafar
- stjornlagathing
- sattekkisatt
- athena
- tikin
- vallyskulad
- vest1
- totibald
- tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.4.): 4
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 2020817
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar