Jæja, komin í samband.

Þá er ég komin með internettengingu, það er notalegt.  Þegar maður er búin að venja sig á þennan ósóma, er ekki aftur snúið.  foot-in-mouth

Ég sit sem sagt hér í La Marína í sól og yndislegu veðri.  Við Elli minn komum hingað síðatliðin laugardag fyrir viku, og höfum það fínt.  

IMG_2336

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Við byrjuðum túrinn auðvitað í Njarðvík, hjá syni okkar og fjölskyldu, Bjössa og Marijana, hér er stóri strákurinn okkar hann Arnar Milos.

 

IMG_2338

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og hér er Davíð Elías ömmustubbur.  

IMG_2339

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hann elskar ömmu í kúlu.  kiss

 

IMG_2343

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Flottir stubbar. 

IMG_2345

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þrengsli í eldhúsinu allir að elda mat.  

 

IMG_2347

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Um að gera að hjálpast að, einbeitingin leynir sér ekki.  

 

IMG_2348

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Úlfurinn kíkti við, hann var að keppa í mælskukeppni á Laugavatni.  

IMG_2356

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ykkar einlæg kiss

 

IMG_2361

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo var förinni haldið áfram, flugum til Gattvick, þar biðum við í 5 kl.  og fórum svo þaðan til Alecanti.

 

IMG_2363

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Beðið á fugvellinum.  Rauðvíndglasið aldrei langt í burtu frá kerlingunni innocent

 

IMG_2365

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi elskulegu hjón sóttu okkur á flugvöllinn, Elín Þóra og Jón Gunnarsson.  Ómissandi félagsskapur. 

 

IMG_2369

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Slakað á þó það sé erfitt fyrir suma. 

IMG_2370

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Aðrir una sér vel með bók eða krossgátur. 

IMG_2373

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Búin að fara á markaðinn og kaupa gotterí. 

IMG_2374

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já þessi mynd þarfnast ekki útskýringar

IMG_2377

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það getur maður keypt fimmlítra rauðvín beint af kút, og ágætis rauðvín.  hehehe

IMG_2383

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér eru hörkuduglegir strákar að gera stétt við húsið hans Nonna.

IMG_2384

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Meðan við Ella fórum á pubbarölt í Sankti Paula.

IMG_2385

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nutum okkar í botn að ræða um fólkið okkar heima og fréttir af hinum og þessum ísfirðingi.   Hér er ströndin, þau búa hér mestan part ársins Ella og Jón.  

IMG_2387

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þegar við komum aftur voru strákarnir búnir að steypa.

IMG_2389

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eftir dásamlegan dag, buðu þau okkur svo út að borða á uppáhaldsveitingastaðinn sinn. 

IMG_2391

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Elsku Nonni og Ella innilega takk fyrir okkur.  Og eigið góðan dag elskurnar.

 


Við getum alveg ráðið ferðinni, ef við bara stöndum saman.

Þetta  með lýðskrumið er nú þegar byrjað.  En ég hef skrifað undir þessa söfnun, því  mér þykir málið gott og þarft.  Hér er ekki verið að lasta neinn, heldur ítreka vilja þjóðarinnar sem vill, samkvæmt skoðanakönnunum veita meira fé í heilbrigðiskerfið en nú er gert.

Einnig er því haldið fram að ekki sé til fé.  En má þá ekki benda á allskonar bruðl á öðrum vettvangi, svo sem eins og að setja milljarða í banka í Kína?  Veita milljónum í að flytja gamlan grjótgarð sem mörgum finnst ekki vera fornminjar.  Selja vinum og vandamönnum fyrirtæki úr Landsbankanum þar sem þeir græða milljarða á milljarða ofan?  Það er nefnilega til nóg fé í ríkisstjóði til að laga margt ófermdarástandið í landinu, en það er bara þannig að því fé skal eytt á annan hátt.  Til að hygla sér og sínum.  

Ég virði það við ríkisstjórnina að hún hefur gert vel í fjármálum landsins, og hvort sem það er þeim að þakka eða ekki, þá er landið að rísa.  En þá kemur alltaf þetta að hygla þeim sem eiga mikið undir sér nú þegar.

Ég mun ekki gleyma neitun þeirra á afturvirkru greiðslu til aldraðra og öryrkja og vona að þeir sem í hlut eiga geri það ekki heldur.  

Ég er ekki að segja að þetta séu vondir menn, en þeir eru svo sannarlega spilltir og hafa engan skilning á hvernig sumir hópar í samfélaginu hafa það.

Stjórnarandstaðan málaði sig út í horg á síðasta kjörtímabili, svo mjög fáir taka mark á þeim í dag.  Þetta ætti að kenna pólitíkusum frammtíðarinnar að það borgar sig ekki að svíkja kjósendur, og þvísíður ljúga að þeim í beinni útsendingu daginn fyrir kosningar.  

Þetta fræga gullfiskaminni er á undanhaldi, og kjósendur hafa breyst margir hverjir þannig að þeir eru loksins farnir að hugsa um sjálfa sig og sína framtíð og barnanna sinna, en ekki einhverja fagurgala sem svo standast sjaldnast.  

Ég held nefnilega að þrátt fyrir allt hafi "hrunið" kennt okkur miklu meira en við gerum okkur grein fyrir.  En það sárast er að við gætum öll haft það svo gott, ef allir fengju sama tækifæri og okkur væri ekki mismunað  svona mikið.  

Og það gengur ekki heldur lengur að reyna að afvegaleiða okkur með því að ráðamenn séu einmitt að vinna faglega, þegar blasir við klíkan og fyrirgreiðslan.  Við erum hvorki blind né heyrnarlaus, nema nokkrir sem verja allt sem frá forystunni kemur, og þá er ég að tala um flokksdindla í öllum flokkum.

Forystumenn stjórnmálaflokkanna skálka nefnilega í því skjóli að vera alltaf varðir í bak og fyrir af "sínum mönnum" hvernig sem þeir haga sér.  Ef menn gerðu það ekki, væri ástandið betra en það er í dag.  Þá væru menn frekar látnir bera ábyrgð á gjörðum sínum.  

En vonandi kemur sá dagur að okkur auðnast að kveða niður þessa endalausu spillingu, sérhagsmuna gæslu og klikuskap.   


mbl.is Reiknar með ásökunum um lýðskrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ómar Ragnarsson eða Gísli á Uppsölum.

Ein vinkona mín hringdi í mig áðan.  Hún sagðist ekki sátt.  Hún er nýkomin af sjúkrahúsi þar sem hægt var að kaupa og senda samúðarkort með mynd af engli, og í kortinu stóð:

Þegar raunir þjaka mig

þróttur andans dvínar

þegar ég á aðeins þig

einn með sorgir mínar.

Gef mér kærleik, gef mér trú

gef mér skilning hér og nú.

Ljúfi drottinn lýstu mér,

svo lífsins veg ég finni.

Láttu ætíð ljós frá þér

ljóma í sálu minni.

 

Sagði hún að þetta ljóð væri sagt eftir Ómar Ragnarsson, sagði hún það alrangt, því ljóðið væri eftir Gísla á Uppsölum.

Ég gat ekki sent kortið, sagði hún því þetta er ekki rétt með farið.

Ég lofaði henni að skoða málið.

Við leit rakst ég á tvær bloggfærslur, aðra frá Ómari Ragnarssyni og hina frá vini mínum Sigmari Þór Sveinbjörnssyni, vestmanneyjing. Þar kemur fram að ljóðið er eftir Gísla á Uppsölum, en Ómar hefur bætt við fleiri erindum.

Eins og sést hér að neðan.

 

http://nafar.blog.is/blog/nafar/entry/1217850/

Bæn

Þegar raunir þjaka mig

þróttur andans dvínar

þegar ég á aðeins þig

einn með sorgir mínar.

Gef mér kærleik, gef mér trú

gef mér skilning hér og nú.

Ljúfi drottinn lýstu mér,

svo lífsins veg ég finni.

Láttu ætíð ljós frá þér

ljóma í sálu minni.

Hér er svo blogg Ómars. 

Gísli frá Uppsölum http://omarragnarsson.blog.is/blog/omarragnarsson/entry/753962/

BÆN EINSTÆÐINGSINS.

Jólin færa frið til manns, - /

fegurð næra hjarta. /

Ljósið kæra lausnarans /

ljómar, skæra, bjarta. /

Frelsun manna fædd nú er. /

Fögnuð sannan boðar mér. /

Ljúfi Drottinn, lýstu mér /

svo lífsins veg ég finni. /

Láttu ætíð ljós frá þér /

ljóma í sálu minni. /

 

Þegar raunir þjaka mig, - /

þróttur andans dvínar. /

Þegar ég á aðeins þig /

einn með sorgir mínar /

gef mér kærleik, gef mér trú, - /

gef mér skilning hér og nú. /

 

Ó, minn Guð, mig auman styð, -

ögn í lífsins straumi. /

Kenndu mér að finna frið /

fjarri heimsins glaumi. /

Margur einn með sjálfum sér, - /

sálar fleinn því veldur, - /

eins og steinn sitt ólán ber, - /

ekki neinn þess geldur. /

 

Nístir kvöl í næmri sál. /

Nætur dvöl er hjartabál. /

Leikinn grátt sinn harmleik heyr. /

Hlær ei dátt með neinum. /

Særður þrátt um síðir deyr. /

Segir fátt af einum. /

 

Góðar stundir og gleðileg jól !

 

Ég er sammála vinkonu minni, það er ekki gott að ljóð Gísla eða bæn, sé sett inn í ljóð Ómars og honum kenndur höfundarréttur. Best hefði verið fyrst hann fann sig knúin til að yrkja fleiri erindi við ljóðið að hafa Gísla ljóð fyrst. Vonandi getur Ómar útskýrt þetta betur.

Annars verð ég að segja að mér finnst það orka frekar tvímælis að taka ljóð látins manns og setja það inn í eigin ljóð, og hefur ef til vill sært fleiri en þessa ágætu og glöggskyggnu vinkonu mína.  

 

gisli_fra_uppsolum

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í bloggi Sigmars kemur fram að myndina tók Árni Johnsen.

 


Börnin okkar sem hráefni fyrir Samtök Atvinnulífsins.

Hef ekki heyrt þvílíka vitleysu árum saman, er þó af nógu að taka. 

 

http://www.ruv.is/frett/5-ara-a-skolabekk

 

"Samtök atvinnulífsins leggja til að skólaskylda hefjist við 5 ára aldur og að framhaldsskólanámi ljúki við 18 ára aldur. Samtökin telja að þjóðhagsbatinn vegna þessa yrði um 70 milljarðar króna á ári". Sem sagt börnunum skal fórnað á altari Mammons, ef þau fara í skólann fimm ára, þá þarf undirbúningur skóla að byrja þegar þau eru fjögurra ára. Alvara lífsins sem sagt að byrja strax, svo atvinnurekendur geti fengið hráefni í vinnuna.

2-Sigga og litli Júlíus 002

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Er ekki hægt að hafa afnot af þeim örlítið fyrr, svo græða megi nóg?

 

"Samkvæmt tillögum SA verður skólaskyldan áfram 10 ár en með því að setjast á skólabekk fimm ára lykju nemendur grunnskólanum einu ári fyrr eða 15 ára. Með styttingu framhaldsskólans í þrjú ár væru flestir að útskrifast úr framhaldsskóla 18 ára. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, forstöðumaður mennta- og nýsköpunarsviðs SA, segir að ýmis efnahagsleg rök mæli með því að þessi breyting verði gerð".

Hélt að þú værir móðir Þorgerður Katrín, en þín börn eru væntanlega orðin eldri en fimm ára. "Ýmis efnahagsleg rök mæli með þessu" segir þú og ég segi skammastu þín.

IMG_0204

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

5 ára stubbur, sem betur fer býr hann í Austurríki, þar sem engum dettur í hug að láta börnin byrja fimm ára til að auka tekjur samfélagsins.  

„Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi fyrir nemendur þannig að þeir flosni ekki upp úr námi og að þeir fái bestu kennslu sem völ er á. Og að við nýtum tímann í leikskóla sem er fyrsta skólastigið, í grunnskóla og framhaldsskóla betur. En ekki síður hitt að við þurfum líka að líta á blákaldar efnahagslegar staðreyndir. Fá fólk fyrr út á vinnumarkaðinn og halda betur utan um fólkið okkar í skólakerfinu,“ segir Þorgerður Katrín.

Og allt þetta á að lagast ef þau byrja í skóla fimm ára en ekki sex? Að þú skulir voga þér að bera þessa vitleysu á borð. Hvaða rannsóknir hafa verið gerðar á þessari fullyrðingu, þ.e. hlutlaus rannsókn fagaðila en ekki samtaka atvinnulífsins, sem sennilega er algjörlega sama um hinn venjulega íslending.

Úlfur í sauðagæru

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

"Auk þess að leggja til að skólaskylda hefjist við 5 ára aldur leggja samtökin til að kennaramenntun verði endurskoðuð, framleiðni og samkeppnishæfni skólakerfisins verði efld og eftirfylgni aukin í kennslu og sömuleiðis endurgjöf til kennara. En með því að færa skólaskylduna niður um eitt ár yrði árleg rekstrarhagræðing hjá sveitarfélögunum um 3,2 milljarðar króna. Í stærra samhengi er talið að efnahagsbatinn gæti orðið allt að 70 milljarðar króna á ári. Það helgast meðal annars af því að ungt fólk kæmi fyrr á vinnumarkaðinn. Talið er að landsframleiðsla myndi aukast um 40 milljarða vegna fjölgunar á vinnumarkaði og um 55 milljarða ef helmingur nemenda kláraði grunnskólann 14 ára".

 

Er ekkert ykkur heilagt? Skera niður heilbrigðiskerfið, Almannatryggingakerfið og nú á að skera börnin niður við trog.

Það er margt svo vitlaust í þessu, fyrir nú utan að þetta endar alltaf á þessum efnahagslegu rökum sem virðast skipta öllu máli, þá er látið liggja að því að börn detti út úr skóla af því að þau byrja of seint, þ.e. 6 ára en ekki sjö.  Þið hafið líka staðhæft að vegna þess að börnin byrji 6 ára, þá sé brottfall meira og þar af leiðandi fleiri sem verða öryrkjar.  'Eg á ekki orð yfir svona málflutning. 

Í annan stað þá vill svo til að það eru fáir menntaskólar á landsbyggðinni, og ennþá færri háskólar á landinu, er ætlast tið að börnin flytji að heiman 15 ára á viðkvæmasta aldri til að stunda skóla í stærri samfélögum.  Þú ert að miða við Garðabæ, það vill nú svo til að þar eru nægir skólar í nágrenninu, lengra nær nú ekki hugsun þín.  

Leyfum börnunum okkar að að vera börn á meðan þau eru börn.  Ekki sjá fyrir ykkur börnin okkar sem gróðalind fyrir græðgina sem tröllríður öllu sem þið komið nálægt.  Þau eru framtíð okkar en ekki vinnuforði fyrir atvinnurekendur. 

Hvernig væri að hætta að senda alla sem hingað koma burtu og ráða það fólk sem hér vill starfa og búa í vinnu sem þjóðin virðist virkilega hafa þörf fyrir?  Er það ekki tvískinnungur?


Veganúar.

Já hvað er nú það spyrja einhverjir  smile Það er nýjasta æðið á Íslandi.  Um þetta áhugamál eða lífstíl hefur verið stofnaður félagsskapur.  

http://kvennabladid.is/?s=Vegan

Það má ekki borða neitt sem kemur frá dýrum.  Og fólk heldur því fram að með því sé það að minnka mengun í heiminum.  Má vera rétt.  En ég held að fólk hafi ekki hugsað þetta alveg til enda.

Segjum svo að fólk hætti almennt að borða dýraafurðir.  Þá hætta bændur væntanlega að ala upp húsdýr eins og kindur, kýr, svín og hænur.  Þá fá þessir vesalingar aldrei tækifæri á að fæðast, vera frjáls á fjöllum eða narta í grænt gras.  

Væri ekki nær að einbeita sér að því að bændur færu betur með skepnurnar sínar, þ.e. þeir sem slugsa.  Að leggja af verksmiðjubúskap og svipta menn leyfi til að halda dýr ef þeir meðhöndla dýrin sín illa.  

Ég hef líka heyrt að fólk fyllist af lofti við að éta baunir.  Mun þá Veganfólkið ekki menga meira en áður?

 

Sjá hér frá Doktor.is

"Vindgangur Vindgangur (prump) er mjög algengt umkvörtunarefni. Vindgangur hefur ekkert með sveppi að gera eða loft sem fólk gleypir. Magn lofts sem kemur frá endaþarmi er mjög mismunandi mikið, allt frá 500 ml til 1500 ml á sólarhring (meðaltal 700 ml). Að meðaltali prumpar einstaklingur um 14 sinnum á dag (+/- 6). Loft frá endaþarmi er samsett að 99% af 5 lofttegundum (nítrat, koltvíoxíð, methan, vetni og súrefnissambandi). Loftið myndast í ristlinum fyrir tilstuðlan baktería við niðurbrot á fæðuleifum og gerjun. Magn vindgangs fer mikið eftir því hvað fólk borðar og valda sumar fæðutegundir (ávextir, grænmeti, baunir) meiri vindgangi en aðrar vegna þess að hvatar í smáþörmunum ná ekki að melta þær þannig að bakteríurnar í ristlinum hafa meira úr að moða og mynda loft".

 

Hvað með að grænmeti er líka lifandi, þó tjáning þeirra sé á öðru plani en okkar í Fána.  

Annað sem er athugavert er að mannskepnan hefur verið kjötætur frá aldaöðli, við erum til og með með vígtennur ætlaðar til að sökkva í safaríkt kjöt ekki satt?

Held líka að það sé ekki gott að fá allt prótein úr grænmeti á ávöxtum.  

Nei kæru vinir hér gildir það sama og áður hefur verið sagt ótal sinnum, allt er best í hófi.

 

 

https://www.youtube.com/watch?v=FgRv7XWJnZs

 

Eigið góðan dag, það verða kjötbollur heimagerðar í kvöldmatinn hjá mér.  Borðaði silung í gær og mun örugglega borða eitthvað dýrslegt á morgun.  kiss En meðlætið verða kartöflur og grænmeti bæði snöggsoðið og hrátt.  


Gleðilegt ár elskurnar, og megi ykkur öllum vegna vel í framtíðinni.

Nú er árið 2016 gengið í garð.  

Þessi hátíð ljóss og lita hefur verið mér afskaplega ánægjuleg.  

Hjá El Salvador fjölskyldunni okkar komu ein fjölskylda í heimsókn, dóttir Pablo með eiginmann, þrjár dætur og tengdason.  Við buðum þeim í mat þann 27. janúar.  Það var mikil ánægja með það, svo við ákváðum að þau myndu eyða gamlárskvöldinu með okkur líka í kúlunni. 

Þetta er reyndar ágætis innlegg i innflytjendamálin, þó þetta fólk ætli sé ekki að flytjast hingað, eru bara að koma sem gestir, þá verð ég að segja að það væri fengur að þessu fólki við mannflóru okkar, yndælt hamingjusamt, elskulegt fólk. 

IMG_2212

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tengdadóttir mín to be or not to be, móðir Sigurjóns Dags Júlíussaonar var með okkur ásamt sínum börum.  Og hér knúsat hún Alejöndru barnabarnið mitt. 

Frá því að ég var krakki hafði ég svona ákveðin trega á gamlárskvöld.  Ég man eftir sem barn að ég stóð í glugganum í svefnherbergin okkar ömmu og afa og horfði á rakettur skjótast í loftið, og fylltist trega, sem ég gerði mér enga grein fyrir af hverju stafaði. Samt gladdist ég yfir fallegum jólaljósum og rakettum.  

Jólin voru tími eftirvæntingar, við fengum samt ekki í skóinn eða slíkt því það tíðkaðist ekki.  En jólasveinarnir áttu samt sem áður sinn sess, en ennþá meira jólakötturinn og Grýla.  Þess vegna þurftu allir að fá nýjar flíkur fyrir jólin, til að enda ekki í jólakettinum.  Man sérstaklega eftir einni jólagjör þegar ég var svona átta ára, það var dúkka frá frænku minni sem var gift offiser í Ameríska hernum og bjó í Keflavík, Nonni bróðir fékk sjálfskríðandi skriðdreka með tilheyrandi hávaða og skotlátum, en dúkkuna mína kallaði ég Erlu og ég á hana enn, hún gat sagt pabbi og mamma, ´núna þegir hún þessi elska en er í heiðurssessi hjá mér wink

Áður átti ég dúkku sem ég kallaði Göggu, hún var með keramik höfuð og það brotnaði og það var mikil sorg   segi og skrifa.

En sem sagt nú um áramótin var öll þessi yndislega fjölskyld hér í mat, El Salvardorarnir elduðu sinn mat Kalkún og komu svo með hann, ég og Sigga mín tengdadóttirinn vorum með lambahrygg.  Og allt gegg þetta bara rosalega vel.

IMG_2218

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nú langar mig að segja við ykkur sem hræðist útlendinga, við erum bara öll eins og það er bara svo frábært að upplifa annan kúltúr og menningarhefðir, og þrátt fyrir allt, þá erum við bara alveg eins. 

IMG_2212

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þannig að við getum alveg knúsast upp á það. <3

IMG_2215

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lotta elskar athygli og vináttu og henni er sko alveg sama hvað tungumál viðkomandi talar, það eru strokurnar sem gilda.  

IMG_2216

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessar tvær elskur eru sprottnar upp úr sömu mold, en himin og haf skilja þær af í menningu, þvðí Alejandra er íslendingur í húð og hár búin að vera hér frá því að hún var smábarn hin alin upp í El Salador, yndæl en bara úr öðru upplagi.

IMG_2217

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér var brugðið á leik með senjor Pablos De Díaz yndælli mann er ekki að finna smile

 

IMG_2221

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Vitið nú bara hvað, hér er fólk samankomið sitt frá hvorri álfunni að borða saman, ræða saman og þykja vænt um hvort annað.  Við hvað er fólk hrætt?

IMG_2224

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hvað er svona óttalegt við að hleypa fólki inn í líf sitt?+

IMG_2225

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þegar allt kemur til alls erum við bara öll mennskjur með sömu væntingar til lífsgæða og vonar um frið og kærleika?

IMG_2227

.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fjölskylda heimsins. Hér er beðið eftir skaupinu, og svo  verður farið á árlega brennu.

IMG_2233

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Getum við ekki bara skilið að við erum fyrst og fremst manneskjur og það er alveg óþarfi að óttast annað fólk. 

IMG_2249

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og skaupið búið og Sigga mín með sínar tvær rakettur, aðra sem táknar 2015 og hina sem táknar 2016. smile

IMG_2250

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stubburinn minn Sigurjón Dagur fékk einn pakka og gat eiginlega ekki beðið eftir að fá að skjóta sem flestu á loft. 

IMG_2251

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og brúmm brúmm....

IMG_2265

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Glaðir ættingjar  með skotfæri. Allt í friðsamlegum tilgangi til að gleðja sjálfa sig og aðra.

IMG_2266

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og Ísfirðingar létu ekki sitt eftir liggja. 

IMG_2270

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þarna kveikir Sigríður á rakettu ársins 2015, og lýkur þar með því ári, sem er þar með komið í loftið. 

IMG_2289

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta er tími uppgjörs og eftirsjár sérstaklega ef maður hefur gert eitthvað sem ber að skammast sín fyrir.  En málið er að það er aldrei of seint að iðrast og bæta fyrir.

IMG_2302

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lítill föðurlaus stubbur, en ég er alveg viss um að pabbi hans vakir yfir honum alla tíð, því hann elskaði hann og bróður hans mjög mikil.  Hann vakir yfir sonum sínum, þó honum hafi ekki enst tími til að fylgja þeim alla leið.  Þá munum við gera það hér í þessu lífi.

IMG_2308

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég vil óska ykkur öllum gleðilegs nýss árs og vil þakka ykkur öllum fyrir ánægjuleg samskipti á liðnu ári og reyndar mörum liðnum árum. 

IMG_2310

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Munum bara að okkur steðjar engin ógn af fólki sem hingað kemur erlendis frá hvort sem er til að heimsækja ættinga eða vilja setjast hér að og verða íslendingar.  Við erum alveg í stakk búin til að taka á móti miklu fleira fólki en nú er, og ég verð að segja að lokum að ég hef skömm á innflytjendalöggjöf okkar sem er að það þurfi sem mest að halda fólki frá landinu, þegar þver á móti er okkur á alla lund í hag að fjölga íbúum og hleypa fleira fólki inn, með kærleika og umburðarlyndi að leiðarljósi.  Innflytjendur eru nefnilega ekki vandamál, heldur ákveðin laust á fámenni, og ég er alveg viss um að þetta fólk getur orðið okkur blessun í framtíðinni. 

......

 


Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Jan. 2016
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 2020787

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband