Flóttamenn og vandamálin því fylgjandi.

Þarf ekki fyrst og fremst að koma skikkið á þau lönd sem flóttafólkið er að flýja? Á að leyfa ofbeldisfullum terroristum að hrekja fólk í burtu af heimilum sínum og lífi? Fyrst og fremst þarf að einangra ofbeldisseggina, rétt eins og þarf að gera við ofbeldisseggi heimila og fjarlægja þá, svo fólk geti lifað af í sínum heimahögum.  Það er gott út af fyrir sig að taka á móti auknum flóttamanna straumi og reyna að koma því fólki til bjargar, en þetta er raunar orðið það alvarlegt mál að það er engin laust að taka á móti fimm þúsund manns, tíuþúsund manns eða hundrað þúsund manns.  Þetta fólk er betur komið heima hjá sér með aðstoð heimsins, svo þau geti lifað mannsæmandi lífi í öryggi.  Það sem þarf að gerast er að fjarlægja ofbeldisseggina úr lífi þeirra.  Það ætti ekki að vera vandamál, vegna upplýsinga og stórtækra aðgerða "heimsyfirráðasjúkra" ríkja eins og BNA og fleiri, ef þeir virkilega vildu, þetta hinsvegar hentar þeim ekki, það var bara akút að fjarlægja Saddam Hussein og slíka og ekkert til sparað.  Það er sorglegra en tárum taki að fylgjast með þessu vesalings fólki sem er að reyna að komast til betra lífs, og síðan horfa upp á níðinga sem notfæra sér ástandið og fara með þau beint í dauðann.  

Eg veit ekki hvað á að gera við slíkt fólk, sem virðist algjörlega siðblint og svífast enskis, sennilega best að gefa þeim bara sprautu beint í æð og enda þar með þeirra ömurlega líf, þeir eiga sér engar málsbætur. En bara að ætla að auka flóttamanastrauminn um 5 þúsund er bara dropi í hafið.  Þetta er bara einfaldlega miklu stærra mál, á skal að ósi stemma eins og segir.  Við þurfum að spá í þessa hluti alveg upp á nýtt og gera okkur grein fyrir vandamálinu frá byrjun.  Ekki bara hugsa um hve marga flóttamenn við getum tekið á móti.  


mbl.is „Ég ætla ekki að nefna einhverja tölu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já ráðherra!

Guð minn góður hvað fólk getur verið siðblint.  Það verður gaman að fylgjast með hvernig henni tekst að komast áfram sem varaformaður, hún hefur jú tiltrú formannsins En skyldi öðrum ekki klígja við að veita henni brautargengi.  En skyldi svo fara að hún yrði varaformaður, hvað verður þá um flokkinn.  Fólk er nefnilega allavega margir með siðferðið svona nokkurnveginn á hreinu.  Hvað með þig?


mbl.is Vill halda áfram sem varaformaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harmagrátur útgerðarmanna.

Já nú gráta þessar elskur krókódílatárum, ég veit ekki hvernig ég átti að vera þegar ég hlustaði á jarmið í Þorsteini Má í fréttum áðan.  Hann talaði um "mannréttindi" og "Samfélagslega ábyrgð".  Hann hefur ekki hugmynd um hvað þessi orð þýða maðurinn sá, því hvar eru Mannréttindi sjómanna og fólks hinna smærri byggð um landið sem þessir kónar hafa lagt í rúst?  Skilið fólkið eftir atvinnulaust og með óseljanlegar eignir.  Hvar var samfélagslega ábyrgðin hans Þorsteins Má og félaga þá?

Þeir mega grenja eins og þeir vilja, en ef þessi ríkisstjórn ætlar svo mikið sem rétta lillaputtann til að gera einkasamninga við útgerðina núna þá vona ég að þjóðin rísi upp og mótmæli svo eftir verið tekið. 

Málið er nefnilega Þorsteinn Már Elliði og fleiri slíkir að mannréttindi varða alla landsmenn ekki bara ykkur þegar komið er við pyngjuna ykkar prívat og persónulega.  

Já Þorsteinn og Guggan verður alltaf gul ekki satt? Því skalt þú og þínir aldrei frá að gleyma. 

 

Guggann

 

 


mbl.is Hótanir Gunnars honum til skammar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nauðlending á Súðavíkurhlíð.

Gott að allt fór vel, en systir mín og mágur eiga hlut í vélinni, og sennilega hefur hún verið að koma frá Fljótavík.  


mbl.is Flugvél nauðlenti í Súðavíkurhlíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Ágúst 2015
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband